top of page

Bókunar- og afbókunarskilmálar dagsferða

Með bókun samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála:

 

Bókun og greiðsla
Bókun telst staðfest þegar greiðsla hefur verið samþykkt eða skrifleg bókunarstaðfesting hefur verið send. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp réttar upplýsingar við bókun.

Afbókun viðskiptavinar
Afbókun sem berst meira en 24 klukkustundum fyrir brottför er endurgreidd að fullu. Afbókun innan 24 klukkustunda fyrir brottför er ekki endurgreidd. Sama gildir ef viðskiptavinur mætir ekki eða kemur of seint á brottfararstað. Tímamörk miðast við staðartíma á Tenerife.

 

Breytingar og afbókun ferðar
Seljandi getur breytt eða aflýst ferð vegna veðurs, öryggissjónarmiða, ónógrar þátttöku, óviðráðanlegra aðstæðna eða annarra rekstrarlegra ástæðna. Ef ferð er aflýst af seljanda fær viðskiptavinur val um nýja dagsetningu eða fulla endurgreiðslu á greiðslu ferðarinnar.

Mæting og öryggi
Viðskiptavinur skal mæta tímanlega á tilgreindan brottfararstað og fylgja fyrirmælum fararstjóra og öryggisreglum. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að meta hvort heilsufar og líkamlegt ástand leyfi þátttöku í ferðinni. Upplýsa skal fyrirfram um heilsufarsvandamál eða annað sem getur haft áhrif á öryggi þátttakanda.

Ábyrgð
Seljandi ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum, veðri, töfum eða breytingum sem rekja má til þriðja aðila eða óviðráðanlegra aðstæðna. Ábyrgð seljanda takmarkast, að því marki sem lög heimila, við þá fjárhæð sem greidd var fyrir ferðina. Skilmálarnir skerða ekki lögbundin réttindi neytenda.

Endurgreiðslur
Endurgreiðslur eru að jafnaði framkvæmdar með sama greiðslumáta og notaður var við bókun. Afgreiðslutími getur verið mismunandi eftir banka eða greiðslumiðlun.

Seljandi ferðar
Seljandi er annaðhvort TripOz ehf., kt. 520121-1880, eða Vacation and Excursion Nordic S.L. (Tenerife Ferðir), CIF B76764588. Nafn viðkomandi seljanda kemur fram í bókunarstaðfestingu eða á reikningi.

Um þjónustuna gilda spænsk lög og ófrávíkjanleg neytendalög eftir því sem við á.

bottom of page